Til að gera um mig

eftir að þið eruð búin að fá lykilorð og notendanafn loggið ykkur bara inná bloggar.is síðan klikkiði á "undirsíður" sem er hægra megin á síðunni, klikkið síðan á bæta við síðu og setjið nafnið ykkar í titilinn og svo það sem þið hafið verið að gera í textareitinn og svo bara vista;)

Textareitur

Endilega sem flestir að vera með :)
Senda bara í komment síðuna sína og jafvel e-mail líka og við sendum til ykkar lykilorðið :)
karilitli_punk@hotmail.com

Loka útkall

17. júní 2008 klukkan 22:25
Jæja þá er nefndin búin að finna kostnaðinn á haus á mótið í sumar en það er blár og fjólublár, ekkert röfl út af því. fyrir ykkur sem eru treg þá er það 6000 kall!!! Við reiknum með að þið borgið það þegjandi og hljóðalaust sem fyrst!! þið fáið bréf með öllum upplýsingum núna í lúguna á næstu dögum. þið sem ekki eruð búin að láta í ykkur heira þá eruð þið á síðasta sjens með skráningu. Munið bara eftir sundfötum það skiptir miklu máli og ælupokum því að sumir verða bílveikir í rútu!!!!

KV.Strákarnir og Vala

helvítis krútt!!!!!!

08. maí 2008 klukkan 22:12
jæja elskur,,,,,,,,


klukkan 1300 þann fimmta júlí munum við hittast  vibbííí........



Samt eru ennþá alltof fáir búnir að skrá sig og hvetjum við fólk til að
drífa sig, erum alltaf að heyra að fólk er að tala um að koma en skáir sig
 
ekki!!

þannig að síðasti skráningardagur er 10 júni!!!!!!!

Þannig að Davíð og co dragið hausinn úr rassgatinu á ykkur og skráið ykkur ef að þið ætlið að mæta.


Við lofum ykkur miklu fjöri!!!!!

5 júli

15. febrúar 2008 klukkan 22:07
Jæja þá er búið að negla 5 júlí

fljótlega eftir helgi verður sendur út miði með upplýsingum um skráningu!!
Verður þetta sent á ykkar lögheimili en við tókum eftir því að margir í bekknum eru með lögheimili hjá foreldrum sínum þó að þeir búi í borginni og vonum við að foreldrar komi því þá bara til skila.


Síðan vill ég benda fólki á að skrá sig sem fyrst því það mun auðvelda okkar vinnu við að halda niðri kostnaði og skipulagningu!!!!!!


Svo þegar að það sé komið sirka á hreint hvað mæta margir þá munum við senda aftur upplýsingar með nánari dagskrá.................

Skráning hefst nákvæmlega á miðnætti í kvöld og getið þið skráð ykkur með því að senda ofurskvísuni Völujobba sms í síma  8697849
eða senda mér rafrænanpóst í meilið maxjeppe@hotmail.com



jæja ég vonast síðan til að sjá sem flesta og þið skráið ykkur sem fyrst.


Hr Matthías kveður

Allt að fara á fullt!

17. janúar 2008 klukkan 17:35
Heyrðu svariði í kommentum.

1. Hvort vill fólk hafa bekkjarmótið á mærudögunum eða einhverja aðra helgi?

2. Hvað finnst ykkur að hámarks kostnaður á mann eigi að vera ??


naunaunau

11. nóvember 2007 klukkan 16:35
heyrðu setti inn nokkrar gamlar myndir í alveg blússandi gæðum frá barnaskólaárunum. Njótið

-Brynja-

9 ÁR...

31. maí 2007 klukkan 17:50
Til hamingju kæru bekkjarfélagar sem fermdust með mér fyrir um hvað... 9 árum síðan... !!

og Matti nefndarmaður til hamingju með daginn;)

kv
Bryns

...

19. maí 2007 klukkan 09:30
14. JÚLÍ

Ína að meikaða ;)

05. maí 2007 klukkan 14:19

Borghildur Ína vann hönnunarkeppni Hagkaupa

Borghildur Ína Sölvadóttir fór með sigur af hólmi í hönnunarkeppni Hagkaupa, sem haldin var nú í annað skipti. Eva Dögg Óskarsdóttir varð önnur og Birna Einarsdóttir varð þriðja.

Hagkaup segja, að markmiðið með keppninni sé að styðja við bakið á íslenskum fatahönnuðum og gera þeim kleift að koma vörum sínum á framfæri.

Veitt voru peningaverðlaun og Hagkaup mun kynna vörur sigurvegarans og hugsanlega fleiri þátttakenda í Hagkaupsblaðinu og öðrum miðlum og selja þær í verslunum næsta vetur.
(tekið af mbl.is)

Innilega til hamingju með þetta Ína!!:)

bestu kveðjur
Bryns

bekkjarmót með fyrra fallinu??

22. apríl 2007 klukkan 12:51
sú hugmynd hefur skotið upp kollinum að halda 10ára bekkjarmótið sem á með réttu að vera næsta sumar, í sumar...

er stemmari fyrir því???

fara eitthvað út í rassgat, bara við og láta eins og fíbbl eina helgi saman...

og sjálfskipaðir í nefnd eru halli orri, kiddi og matthías þannig að þetta ætti að geta orðið athyglisvert:)

afmælisbarn:)

18. október 2006 klukkan 04:45
hún elsku brynja mín á afmæli í dag, 22 ára þessi elska!! innilega til hamingju með daginn brynja mín.... kv ásta

Auglýsing

Könnun

Bekkjarmót um Mærudagana?